Eru þínar upplýsingar réttar? Mikilvægt að bregðast við
Nú fer fram árleg voruppfærsla á upplýsingum í gagnagrunni ferðaþjónustunnar og þeim ferðavefjum sem honum tengjast. Ferðavefina skoða milljónir fólks, bæði erlendir og innlendir ferðamenn, og er því mikilvægt að upplýsingar fyrirtækja þar inni séu réttar og áreiðanlegar. Skráning fyrirtækja er þeim að kostnaðarlausu.
Þegar ætti meirihluti skráðra fyrirtækja að hafa fengið póst frá okkur og síðustu póstar fara út á næstu dögum. Aðilar sem ekki bregðast við erindinu, eiga í hættu að hætta að birtast markaðsvefjunum ferdalag.is og visiticeland.com
Hvar birtast upplýsingarnar?
Upplýsingar úr grunninum eru m.a. birtar á landkynningarvefnum www.visiticeland.com og ferðavefnum www.ferdalag.is. Jafnframt birtast upplýsingar á öllum landshlutavefjum markaðsstofanna á landsbyggðinni
Aðgangur fyrir skráða aðila
Fyrirtæki eða aðilar sem eru með skráningu geta fengið aðgang til að halda utan um og breyta sínum upplýsingum. Þeir sem hafa fengið frá okkur póst þess efnis og svarað ættu að hafa fengið staðfestingarpóst með upplýsingum næstu skref. Bendum einnig á leiðbeiningar til að vinna með grunninn.
Skráning í grunninn
Öll fyrirtæki með tilskilin leyfi geta fengið skræaningu æi grunninn og er hún þeim að kostanaprlausu sem fyrr segur. Ferðaþjónustuaðilar geta fyllt út eyðublaðið hér að neðan til að óska eftir skráningu í grunninn.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í gegnum netfangið ferdalag@ferdamalastofa.is.