Fækkun farþega 31,3% á fyrsta ársfjórðungi
Tæplega 93 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í marsmánuði síðastliðnum, samkvæmt tölum frá flugvellinum. Frá áramótum, það er á fyrsta ársfjórðungi, fóru tæplega 379 þúsund farþegar um völlinn sem er 31,3% samdráttur sé miðað við sama tímabil í fyrra.
Fækkunin í mars nemur 37% en hafa ber í huga í þessu sambandi að í fyrra taldist páskaumferðin með marsmánuði en kemur inn í apríltölur í ár. Farþegar á leið frá landinu voru 41.678 í mars síðastliðnum en á leið til landsins voru 41.198 farþegar. Áfram- og skiptifarþegum fækkar einnig á milli ára. Nánari skiptingu má sjá í töflunni hér að neðan.
Líkt og í janúar og febrúar má búast við að samdráttur í ferðum Íslendinga vegi hlutfallslega hærra í þessum tölum en nemur fækkun í heimsóknum erlendra gesta. Nú er verið að vinna úr tölum Ferðamálastofu fyrir marsmánuð en í þeim má sjá skiptingu eftir þjóðerni og þá kemur þetta betur í ljós.
Mars.09. | YTD | Mars.08. | YTD | Mán. % breyting | YTD % Breyting | |
Héðan: | 41.678 | 115.884 |
65.477 |
170.149 |
-36,35% |
-31,89% |
Hingað: | 41.198 | 109.233 |
66.519 |
170.172 |
-38,07% |
-35,81% |
Áfram: | 3.365 | 16.409 |
2.701 |
7.096 |
24,58% |
131,24% |
Skipti. | 6.385 | 18.509 |
12.272 |
31.123 |
-47,97% |
-40,53% |
92.626 | 260.035 | 146.969 | 378.540 |
-36,98% |
-31,31% |