Færri gistinætur Íslendinga en fjölgun hjá erlendum gestum
Gistinætur á hótelum í janúar síðastliðnum voru 54.800 en voru 58.500 í sama mánuði árið 2008, samkvæmt tölum Hagstofunnar sem birtar voru í dag. Fækkun gistinátta í janúar má eingöngu rekja til Íslendinga því þeim fækkaði um 33% en gistinóttum útlendinga fjölgaði um 6% á milli ára.
Gistinóttum fækkaði í öllum landshlutum nema á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem gistóttum fjölgaði um 6% miðað við janúar 2008. Hlutfallslega fækkaði gistinóttum mest á Austurlandi úr 1.400 í 650 eða um 54%. Gistinætur á Suðurlandi voru 2.700 í janúar og fækkaði um 10% frá fyrra ári, á Norðurlandi voru 1.700 gistinætur sem er 6% minna en í janúar 2008. Gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði einnig 6%, voru 45.400 samanborið við 48.200 í janúar 2008.
Hagstofan vekur athygli á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.