Farþegar um Keflavíkurflugvöll í apríl
Rúmlega 143 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í aprílmánuði síðastliðnum, samkvæmt tölum frá flugvellinum. Frá áramótum, það er á fyrsta ársþriðjungi, fóru rúmlega 452 þúsund farþegar um völlinn sem er 23,3% aukning sé miðað við sama tímabil í fyrra.
Fjölgunin í apríl er veruleg eða tæp 56%. Það á sér að sjálfsögðu skýringu í því að í apríl í fyrra gaus Eyjafjallajökull og var Keflavíkurflugvöllur þá lokaður langtímum saman. Þá fellur páskaumferðin nú til í apríl en var að hluta til í mars í fyrra. Til samanburðar má líta aftur til ársins 2008, þegar páskar voru einnig í apríl, en þá fóru tæplega 138 þúsund farþegar um Keflavíkurflugvöll. Þá höfðu 516 þúsund farþegar farið um völlinn frá áramótum, eða nokkru fleiri en nú. Verið er að vinna úr tölum Ferðamálastofu fyrir apríl en í þeim má sjá skiptingu ferðamanna eftir þjóðerni.
April.11. |
YTD |
Apri. 10. |
YTD |
Mán. % breyting |
YTD % Breyting |
|
Héðan: | 59.186 | 192.799 |
40.787 |
162.172 |
45,11% |
18,89% |
Hingað: | 60.946 | 189.647 |
40.046 |
156.854 |
52,19% |
20,91% |
Áfram: | 1.231 | 6.311 |
1.395 |
6.467 |
-11,76% |
-2,41% |
Skipti. | 21.721 | 63.448 |
9.605 |
41.226 |
136,14% |
53,90% |
143.084 | 452.205 | 91.833 | 366.719 |
55,81% |
23,31% |