Farþegar um Keflavíkurflugvöll í apríl
Rúmlega 118 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í aprílmánuði síðastliðnum, samkvæmt tölum frá flugvellinum. Frá áramótum, það er á fyrsta ársþriðjungi, fóru rúmlega 516 þúsund farþegar um völlinn sem er 26,7% samdráttur sé miðað við sama tímabil í fyrra.
Fækkunin í apríl nemur 14% en til samanburðar var fækkunin í mars 37% á milli ára. Hafa ber í huga í þessu sambandi að í fyrra taldist páskaumferðin með marsmánuði en kemur inn í apríltölur í ár. Búast má við að samdráttur í ferðum Íslendinga vegi hlutfallslega hærra í þessum tölum en nemur fækkun í heimsóknum erlendra gesta. Nú er verið að vinna úr tölum Ferðamálastofu fyrir apríl en í þeim má sjá skiptingu eftir þjóðerni og þá kemur þetta betur í ljós.
April.09. |
YTD |
Apri. 08. |
YTD |
Mán. % breyting |
YTD % Breyting | |
Héðan: | 51.911 | 167.795 |
60.640 |
230.789 |
-14,39% |
-27,30% |
Hingað: | 53.617 | 162.850 |
62.883 |
233.055 |
-14,74% |
-30,12% |
Áfram: | 3.216 | 19.625 |
2.098 |
9.194 |
53,29% |
113,45% |
Skipti. | 9.438 | 27.947 |
11.882 |
43.005 |
-20,57% |
-35,01% |
118.182 | 378.217 | 137.503 | 516.043 |
-14,05% |
-26,71% |