Farþegar um Keflavíkurflugvöll í febrúar
03.03.2009
Flugstöð
Rúmlega 83 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í nýliðnum febrúarmánuði, samkvæmt tölum frá flugvellinum. Þetta er tæplega fækkun 28% farþega á milli ára, það er miðað við febrúar í fyrra.
Farþegum á leið frá landinu hefur frá áramótum fækkað um 29% en farþegum á leið til landsins um 34,4%. Áfram- og skiptifarþegum hefur á hinn bóginn fjölgað um 8,2%. Nánari skiptingu má sjá í meðfylgjandi töflu. Væntanlegar eru tölur frá Ferðamálastofu um talningu farþega sem fara um völlinn þar sem hægt er að sjá skiptingu eftir þjóðerni.
Feb.09. |
YTD |
Feb.08. |
YTD |
Mán. % breyting |
YTD % Breyting | |
Héðan: | 35.954 | 74.206 |
52.908 |
104.672 |
-32,04% |
-29,11% |
Hingað: | 36.071 | 68.035 |
52.085 |
103.653 |
-30,75% |
-34,36% |
Áfram: | 5.757 | 13.044 |
1.847 |
4.395 |
211,69% |
196,79% |
Skipti. | 5.332 | 12.124 |
8.124 |
18.851 |
-34,37% |
-35,69% |
83.114 | 167.409 | 114.964 | 231.571 |
-27,70% |
-27,71% |