Farþegar um Keflavíkurflugvöll í júlí
Í nýliðnum júlímánuði fór 283.501 farþegi um um Keflavíkurflugvöll, samkvæmt tölum frá flugvellinum. Þetta eru um 11,7% fleiri farþegar en í júlí 2009.
Frá áramótum hafa rúmlega 991 þúsund farþegar farið um völlinn en til samanburðar þá voru þeir tæplega 959 þúsund á sama tímabili í fyrra. Eins og sjá má í töflunni hér að neðan er það fjölgun áfram- og skiptifarþega sem vegur þar þyngst.
Nú er verið að vinna úr tölum Ferðamálastofu fyrir júlí en í þeim má sjá skiptingu eftir þjóðerni og þá kemur þetta betur í ljós.
|
Júlí 10. |
YTD |
Júlí 09. |
YTD |
Mán. % breyting |
YTD % Breyting | |
Héðan: |
104.606 |
396.730 |
102.193 |
404.308 |
2,36% |
-1,87% | |
Hingað: |
119.652 |
424.995 |
115.247 |
425.170 |
3,82% |
-0,04% | |
Áfram: |
2.221 |
11.305 |
3.818 |
31.272 |
-41,83% |
-63,85% | |
Skipti. |
57.022 |
158.194 |
32.564 |
97.777 |
75,11% |
61,79% | |
|
283.501 |
991.224 |
253.822 |
958.527 |
11,69% |
3,41% |