Farþegar um Keflavíkurflugvöll í júní
06.07.2009
Flugstöð
Tæplega 194 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í júnímánuði síðastliðnum, samkvæmt tölum frá flugvellinum. Þetta eru um 19,4% færri farþegar en í júní 2008.
Frá áramótum hafa tæplega 705 þúsund farþegar farið um völlinn en til samanburðar þá voru þeir tæplega 930 þúsund á sama tímabili í fyrra. Búast má við að samdráttur í ferðum Íslendinga vegi hlutfallslega hærra í þessum tölum en nemur fækkun í heimsóknum erlendra gesta. Nú er verið að vinna úr tölum Ferðamálastofu fyrir júní en í þeim má sjá skiptingu eftir þjóðerni og þá kemur þetta betur í ljós.
Júní.09. | YTD | Júní.08. | YTD | Mán. % breyting | YTD % Breyting | |
Héðan: | 78.667 |
302.115 |
103.570 |
411.407 |
-24,04% |
-26,57% |
Hingað: | 88.123 | 309.923 |
109.916 |
417.468 |
-19,83% |
-25,76% |
Áfram: | 3.947 | 27.454 |
2.116 |
15.986 |
86,53% |
71,74% |
Skipti. | 23.191 | 65.213 |
24.933 |
84.908 |
-6,99% |
-23,20% |
193.928 | 704.705 |
240.535 |
929.769 |
-19,38% |
-24,21% |