Ferðamálaþing sent út á netinu
Talsvert á þriðja hundrað þátttakendur eru skráðir á Ferðamálaþing 2013 á Selfossi á morgun, 2. október. Því miður er salurinn sprunginn og ekki hægt að taka við fleiri skráningum en ákveðið hefur verið að senda þingið út beint á netinu fyrir þá sem ekki komast á staðinn.
Að fylgjast með útsendingu á netinu
Leiðbeiningar til að tengjast útsendingu á netinu eru hér að neðan:
1. Uppsetning á nýjustu útgáfu Java:
Til að byrja með er nauðsynlegt að tryggja að tölvan sé með nýjustu útgáfu af Java forritinu (er á öllum tölvum en ekki
víst að þið séuð með það nýjasta). Þannig að best er að byrja á að fara inn á www.java.com, hlaða þar
niður nýjustu útgáfu (áberandi hnappur á miðjum skjánum) og setja upp. Þetta getur tekið nokkrar mínútur.
2. Tengjast fundinum:
Til að tengjast fundinum er farið inn á þessa vefslóð sem verður virk skömmu áður en málþingið hefst:
https://fundur.thekking.is/startcenter/Join.xhtml?sinr=445218253&sipw=nv64
Athugið að samþykkja þau skilaboð sem upp koma en í flestum tilfellum kemur tvívegis upp gluggi þar sem smellt er á "Run". Eftir það á fundur að hefjast.