Ferðaþjónusta í tölum 2012 komin út
22.04.2013
Árlegur talnabæklingur Ferðamálastofu, Ferðaþjónusta í tölum 2012, er nú komin út. Þar má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um íslenska ferðaþjónustu.
Í bæklingnum eru teknar saman og settar fram myndrænt og í texta ýmsar tölulegar staðreyndir um íslenska ferðaþjónustu, fjölda erlendra ferðamanna, gistinætur og ferðahegun erlendra ferðamanna og Íslendinga. Helstu heimildir eru kannanir Ferðamálastofu meðal erlendra ferðamanna og Íslendinga, talning ferðamanna í Leifsstöð og tölur frá Hagstofunni. Meðal þess sem sjá má í bæklingnum er:
- Hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu
- Hlutur ferðaþjónustu í gjaldeyristekjum
- Ferðaneysla erlendra ferðamanna
- Kaup á ferðaþjónustu innanlands
- Meðalútgjöld erlendra ferðamanna
- Fjöldi ferðamanna og skipafarþega
- Ferðamenn eftir þjóðerni
- Gistirými eftir landshlutum
- Nýting á gistirými
- Gistinætur erlendra ferðamanna og Íslendinga
- Greining á ferðamönnum eftir kyni, aldri, starfi og tekjum
- Ákvörðunarferli erlendra ferðamanna að Íslandsferð, ferðahegðum þeirra á Íslandi, útgjöld og viðhorf þeirra til ýmissa þátta
- Ferðalög Íslendinga innanlands og utan, ferðahegðun innanlands og áform um ferðalög
Ritið í heild er aðgengilegt hér að neðan í PDF-formi. Ensk útgáfa er væntanleg á næstu dögum.
Nánari upplýsingar gefur Oddný Þóra Óladóttir, rannsóknastjóri Ferðamálastofu oddny@ferdamalastofa.is.