Ferðaþjónusta á Íslandi í tölum 2014
Árlegur talnabæklingur Ferðamálastofu, Ferðaþjónusta á Íslandi í tölum 2014, er nú kominn út. Þar má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um íslenska ferðaþjónustu.
Í bæklingnum eru teknar saman og settar fram myndrænt og í texta ýmsar tölulegar staðreyndir um íslenska ferðaþjónustu, fjölda erlendra ferðamanna, gistinætur og ferðahegðun erlendra ferðamanna og Íslendinga. Helstu heimildir eru kannanir Ferðamálastofu meðal ferðamanna, talning ferðamanna í Leifsstöð og tölur frá Hagstofunni. Meðal þess sem fram kemur í bæklingnum er:
Hlutur ferðaþjónustu í gjaldeyristekjum
Útgjöld erlendra ferðamanna
Kortavelta erlendra ferðamanna
Fjöldi ferðamanna og skipafarþega
Ferðamenn eftir þjóðerni, mánuðum og árstíðum
Gistirými eftir landshlutum
Nýting á gistirými
Gistinætur erlendra ferðamanna og Íslendinga
Helstu niðurstöður úr síðustu könnun meðal erlendra ferðamanna
Ferðalög Íslendinga innanlands og utan, ferðahegðun innanlands og áform um ferðalög
Ritið í heild er aðgengilegt hér að neðan í PDF-formi. Ensk útgáfa er væntanleg á næstu dögum.
Nánari upplýsingar gefur Oddný Þóra Óladóttir, rannsóknastjóri Ferðamálastofu oddny@ferdamalastofa.is.