Ferðaþjónusta í tölum 2015
03.06.2016
Árlegur talnabæklingur Ferðamálastofu, Ferðaþjónusta á Íslandi í tölum 2015, er nú kominn út. Þar má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um íslenska ferðaþjónustu.
Í bæklingnum eru teknar saman og settar fram myndrænt og í texta ýmsar tölulegar staðreyndir um íslenska ferðaþjónustu, fjölda erlendra ferðamanna, gistinætur og ferðahegðun erlendra ferðamanna og Íslendinga. Helstu heimildir eru kannanir Ferðamálastofu meðal ferðamanna, talning ferðamanna í Leifsstöð og tölur frá Hagstofunni. Meðal þess sem fram kemur í bæklingnum er:
- Hlutur ferðaþjónustu í gjaldeyristekjum
- Útgjöld erlendra ferðamanna
- Kortavelta erlendra ferðamanna
- Fjöldi ferðamanna og skipafarþega
- Ferðamenn eftir þjóðerni, mánuðum og árstíðum
- Gistirými eftir landshlutum
- Nýting á gistirými
- Gistinætur erlendra ferðamanna og Íslendinga
- Helstu niðurstöður úr síðustu könnun meðal erlendra ferðamanna
- Ferðalög Íslendinga innanlands og utan, ferðahegðun innanlands og áform um ferðalög
Ritið í heild er aðgengilegt hér að neðan í PDF-formi. Ensk útgáfa er væntanleg á næstu dögum.