Ferðaþjónusta og skemmtiferðaskipin - Kynningarfundur
Kynningarfundur Ferðamálastofu um helstu málefni skemmtiferðaskipa sem hluta af íslenskri ferðaþjónustu
Hvenær: Miðvikudaginn 6. desember 2023 kl. 14 – 16
Hvar: Í fundarsalnum Fenjamýri á jarðhæð Grósku hugmyndahúss, Bjargargötu 1 í Vatnsmýri og beinu streymi
Ferðamálastofa í samstarfi við Íslenska ferðaklasann boðar til kynningarfundar á helstu málefnum skemmtiferðaskipa sem hluta af íslenskri ferðaþjónustu
Fundarstjóri: Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri
Dagskrá:
Kl. 14.00 – 14.10 |
Ferðamálastjóri setur fundinn og reifar efni hans |
Kl. 14.10 – 14.35 |
Útgjöld farþega skemmtiferðaskipa í Reykjavíkurhöfn í landi og aðrar meginniðurstöður könnunar sumarið 2023 – Rannsóknamiðstöð ferðamála, Þórný Barðadóttir |
Kl. 14.35 – 15.00 |
Núll og nix eða myndarleg búbót? Tekjur lykilaðila af þjónustu við skemmtiferðaskip – Ferðamálastofa, Jóhann Viðar Ívarsson |
Kl. 15.00 – 15.10 |
Kaffihlé |
Kl. 15.10 – 15.30 |
Upplifun og viðhorf heimamanna til skemmtiferðaskipa á Akureyri, Ísafirði og í Reykjavík: Könnun sumarið 2023 – Rannsóknamiðstöð ferðamála, Eyrún Jenný Bjarnadóttir |
Kl. 15.30 – 16.00 |
Bleiki fíllinn í stofunni: Mengun af skemmtiferðaskipum í íslenskri landhelgi – Hagstofa Íslands, Þorsteinn Aðalsteinsson |
Beint streymi verður á síðu viðburðarins á Facebook
Ljósmynd: Ursula Drake á Unsplash