Fjármögnun uppbyggingar og viðhalds ferðamannastaða - Yfirlit yfir gjaldtökuleiðir
Nú liggur fyrir samantekt sem ráðgjafafyrirtækið Alta vann að beiðni Ferðamálastofu. Markmið vinnunnar var að varpa ljósi á hvernig afla mætti tekna til að fjármagna uppbyggingu og viðhald ferðamannastaða.
Yfirlit um leiðir í öðrum löndum
Í skýrslunni er megináherslan lögð á yfirlit yfir leiðir sem farnar eru í öðrum löndum til að finna fordæmi og hliðstæður sem styðjast mætti við og síðan að setja þessar leiðir í íslenskt samhengi.
Hugmyndir um náttúrupassa
Þá er reynt að skýra hvað falist gæti í hugmyndum um náttúrupassa en slíkum hugmyndum hefur verið vel tekið þótt nákvæm útfærsla hafi verið nokkuð á reiki. Í upphafi er farið stuttlega yfir helstu hagstærðir til þess að lesandinn geti betur glöggvað sig á mögulegum áhrifum ólíkra gjaldtökuleiða ef þær væru innleiddar hér.
Uppbygging fylgir ekki fjölgun gesta
Eftir að ferðamönnum fór að fjölga nokkuð hratt upp úr aldamótum hefur reynst erfitt að láta uppbyggingu og viðhald ferðamannastaða halda í við fjölgun gesta. Ábendingar hafa komið fram um þörf fyrir úrbætur hér og þar og ástand friðlýstra svæða hefur verið metið og aðgerðum forgangsraðað.
Greinargóðar upplýsingar forsenda góðrar sáttar
Mikil umræða var snemmsumars 2013 um brýna þörf fyrir gjaldtöku sem leið til að fjármagna uppbyggingu og viðhald ferðamannastaða. Áhugi er á því hjá stjórnvöldum að bregðast hratt við. Á hinn bóginn er ljóst að gjaldtakan varðar hagsmuni margra enda er ferðaþjónusta orðin fjölmenn og kröftug atvinnugrein sem vegur sífellt þyngra í þjóðarbúskapnum. Forsenda sáttar um niðurstöðu og ákvörðun er að greinargóðar upplýsingar liggi fyrir og þessari skýrslu er ætlað að draga fram hluta af þeim.
Framhald málsins
Skýrslan hefur nú verið kynnt fyrir ráðherra ferðamála, Ragnheiði Elínu Árnadóttur og mun ráðuneytið nýta skýrsluna í áframhaldandi vinnu við útfærslu á fjármögnunarleiðum til framtíðaruppbyggingar.
Skýrslan í heild:
Nánari upplýsingar:
Nánari upplýsingar veitir Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri, olof@ferdamalastofa.is Sími: 535-5500