Forsendur Landsskipulagsstefnu 2015-2026
Í ljósi mikilvægis skipulagsmála í tengslum við ferðaþjónustu er vert að benda á að Skipulagsstofnun hefur tekið saman skýrsluna „Skipulagsmál á Íslandi 2014 - Lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir“.
Yfirliti um stefnu stjórnvalda í einstökum málaflokkum
Í henni eru settar fram helstu forsendur Landsskipulagsstefnu 2015-2026, þ.e. greinargerð um stöðu og þróun skipulagsmála í landinu ásamt yfirliti um stefnu stjórnvalda í einstökum málaflokkum sem varða skipulag landnotkunar og byggðaþróun. Auk þess að vera lögð til grundvallar við gerð landsskipulagsstefnu er skýrslunni ætlað að nýtast sveitarfélögum við gerð aðal- og svæðisskipulags.
Unnið út frá fjórum málaflokkum
Skýrslan er sett fram í samræmi við afmörkun og uppbyggingu í Lýsingu Landsskipulagsstefnu 2015-2026. Unnið er út frá fjórum málaflokkum sem samsvara viðfangsefnum aðal- og svæðisskipulags sveitarfélaga, en þeir eru:
- Byggð og samfélag
- Umhverfi og náttúra
- Atvinna og orka
- Samgöngur og fjarskipti
Undir hverjum þessara málaflokka eru skilgreindir nokkrir lykilþættir eða mælikvarðar sem liggja til grundvallar við greiningu forsendna.
Skipulagsmál á Íslandi 2014 - Lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir (pdf útgáfa).