Fuglasafn Sigurgeirs Stefánssonar opnað
20.08.2008
Fuglasafn af mbl
Sunnudaginn 17. ágúst var opnað við hátíðlega athöfn Ytri-Neslöndum við Mývatn Fuglasafn Sigurgeirs Stefánssonar. Viðstaddir voru 250 boðsgestir og þar á meðal var Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands en hún er einnig verndari safnsins.
Sigurgeir var bílstjóri Vigdísar á ferð um Suðurbotna og víðar meðan hún gengdi forsetaembættinu og minntist hún Sigurgeirs í ávarpi hennar við opnun safnsins.
Á safninu er að finna allar tegundir íslenskra varpfugla að undanskildum Þórshana. Safnið verður opið alla daga frá kl. 11:00-19:00.
Mbl.is greindi frá þessari frétt.