Gerum góða gistingu betri - gæðaátak hjá Ferðaþjónustu bænda
Á síðasta ári réðst Ferðaþjónusta bænda í 3ja ára verkefni á sviði gæðamála í samstarfi við fyrirtækið Better Business. Markmið verkefnisins er að gera stöðumat á aðbúnaði og þjónustu hjá félögum innan Ferðaþjónustu bænda út frá sjónarhorni gesta, þrjú ár í röð.
Um er að ræða svokallaðar hulduheimsóknir sem geta gefið okkur verðmætar upplýsingar sem miða að því að styrkja stöðu samtakanna á sviði gæðamála og auka samkeppnishæfni félagsmanna, segir í frétt frá Ferðaþjónustu bænda..
Alls tóku 22 félagar í Ferðaþjónustu bænda þátt í verkefninu síðastliðið sumar og voru niðurstöðurnar kynntar á Uppskeruhátíð ferðaþjónustubænda sem haldin var í nóvember síðastliðinn. Fimm bæjum voru veitt sérstök viðurkenningarskjöl fyrir góðan árangur en þeir fengu heildareinkunn yfir 8,5 og telst það vera mjög vel af sér vikið. Þessir bæir eru Heydalur í Mjóafirði, Engimýri í Öxnadal, Brunnhóll á Mýrum, Hótel Hellnar á Snæfellsnesi og Smyrlabjörg í Suðursveit. Þessi frammistaða mun eflaust hvetja rekstraraðilana áfram við að halda áfram á sömu braut og verða öðrum hvatning til að gera betur.
Fjölga umhverfisvottuðum fyrirtækjum
Annað verkefni sem var í gangi á síðasta ári miðað að því að fjölga umhverfisvottuðum fyrirtækjum innan Ferðaþjónustu bænda. Árangur þess hefur verið að koma í ljós undanfarna mánuði því nú hefur Green Globe vottuðum fyrirtækjum á vegum Ferðaþjónustu bænda fjölgað úr þremur í sjö, auk þess sem eitt fyrirtæki til viðbótar uppfyllir viðmið Green Globe og bíður nú eftir staðfestingu um vottun. Í dag eru eftirfarandi fyrirtæki Green Globe vottuð: Hótel Hellnar, Hótel Anna, Brunnhóll á Mýrum, Ferðaþjónustan Hjalli í Kjós, Heydalur í Mjóafirði, Gauksmýri í Húnaþingi auk þess sem skrifstofa Ferðaþjónusta bænda er einnig vottuð. Það er svo Geirland á Síðu sem bíður eftir að fá staðfestingu á vottun.
Myndin: Á myndinni eru hjónin Sigurbjörn og Laufey frá Smyrlabjörgum búin að taka við viðurkenningu frá Bjarna hjá Better Business og Berglindi frá Ferðaþjónustu bænda.