Gistinætur heilsárshótela í nóvember
Hagstofan hefur birt tölur um gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum. Sem fyrr vekur Hagstofan athygli á að tölurnar ná eingöngu til hótela sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast þannig hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.
20% fjölgun í nóvember 2013
Gistinætur á hótelum í nóvember voru 138.800 sem er 20% aukning miðað við nóvember 2012. Gistinætur erlendra gesta voru 78% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 25% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 6%.
Skipting eftir landssvæðum
Á höfuðborgarsvæðinu voru 110.200 gistinætur á hótelum í nóvember sem er fjölgun um 21% miðað við nóvember 2012. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 3.500 gistinætur sem er fjölgun um 52% miðað við sama tímabil 2012. Á Suðurlandi voru gistinætur 11.000 í nóvember sem er aukning um 40% frá fyrra ári. Á Austurlandi voru gistinætur 2.600 sem er 37% aukning samanborið við nóvember 2012. Á Suðurnesjum voru 5.500 gistinætur í nóvember sem er aukning um 12% frá fyrra ári. Gistinóttum fækkaði á Norðurlandi í nóvember og voru um 6.000 miðað við 7.300 árið áður.
13% fjölgun á fyrstu ellefu mánuðum ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu ellefu mánuði ársins 2013 voru 1.929.757 til samanburðar við 1.705.137 fyrir sama tímabil árið 2012. Ef miðað er við sama tímabil árið 2012 þá hefur gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 14% á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 11%.