Gistinóttum á hótelum á fyrsta ársfjórðungi fjölgaði um 20% milli ára
Gistinætur á hótelum í janúar, febrúar og mars samanlögðum voru 203.300 en voru 169.900 fyrir sama tímabil árið 2006. Þetta kemur fram í gistináttatalningu Hagstofunnar.
Fjölgun varð á öllum landsvæðum. Mest var hún þó á Austurlandi þar sem gistinæturnar nærri tvöfölduðust milli ára, úr 3.300 í 6.400. Aukningin nam 22% á Suðurlandi, 21% á höfuðborgarsvæðinu, 11% á Norðurlandi og 0,5% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum, en þessar tölur eru birtar í einu lagi vegna þess hve gististaðir eru fáir.
Fjölgun gistinátta fyrstu þrjá mánuði ársins skiptist þannig að gistinóttum útlendinga fjölgaði um 27% og Íslendinga um 4%. Hagstofan vekur athygli á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. Tölur fyrir 2007 eru bráðabirgðatölur