Gistinóttum á hótelum árið 2005 fjölgaði um 6% á milli ára
Hagstofan hefur birt tölur um fjölda gistinótta á hótelum í desember síðastliðnum og þar með liggja fyrir niðurstöður ársins 2005 í heild. Tölurnar sýna að gistinóttum fjölgaði um 6% á milli ára en mismikið eftir landshlutum.
Gistinætur á hótelum árið 2005 voru 1.028.200 en voru 968.900 árið 2004 (6% aukning). Hlutfallslega var mesta aukningin á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum, en þar fór heildarfjöldi gistinátta úr 77.800 í 93.800 og fjölgaði þar með um 21% milli ára. Á höfuðborgarsvæðinu nam aukningin 7%, en þar fjölgaði gistinóttum um 46.100, úr 655.400 í 701.500. Á Austurlandi var fjöldi gistinátta á hótelum árið 2005 svipaður og árið 2004, en fjölgaði þó um 1% milli ára. Á Norðurlandi og Suðurlandi dróst gistináttafjöldinn saman um 2% á hvoru svæði um sig.
Sé litið á einstaka mánuði má sjá að gistinóttum á hótelum fjölgaði alla mánuði ársins 2005, nema í febrúar en þá fækkaði nóttum um 1% og í mars fækkaði nóttum um 5%. Mest varð aukningin í janúar, september og desember eða um 13,5% í hverjum mánuði fyrir sig.
32% fjölgun á 5 árum
Ef tölur ársins 2005 eru bornar saman við árið 2001 sést að fjöldi gistinátta á hótelum hefur aukist um 32% á þessum 5 árum. Á þessu tímabili fjölgaði gistinóttum í öllum landshlutum, en þó einna mest á Suðurlandi en þar varð aukningin 75%. Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum varð aukningin 38%, Norðurlandi 36%, höfuðborgarsvæðinu 30% og á Austurlandi 5%.
Athygli skal vakin á því að hér er átt við gistinætur á hótelum eingöngu, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Í þessum flokki gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. Tölur fyrir 2005 eru bráðabirgðatölur.
Gistinóttum í desember fjölgaði um 13%
Gistinætur á hótelum í desember árið 2005 voru 42.300 en voru 37.400 í sama mánuði árið 2004 (13,3% aukning). Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem gistinætur fóru úr 3.000 í 3.700 milli ára (20%). Á höfuðborgarsvæðinu nam aukningin 14%, en gistináttafjöldinn fór úr 29.500 í 33.800. Á Suðurlandi fóru gistinæturnar úr 2.400 í 2.600 sem er aukning um 8%. Gistinóttum á hótelum fækkaði á Norðurlandi um 3% og á Austurlandi um 2%. Fjölgun gistinátta á hótelum í desember árið 2005 er bæði vegna Íslendinga og útlendinga.