Gjaldeyristekjur 2001
08.03.2002
Samkvæmt upplýsingum Seðlabankans um gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu árið 2001 urðu þær rúmlega 7 milljörðum meiri en árið 2000. Aukning tekna vegna eyðslu í landinu er tæpir 5 milljarðar, en í fargjaldatekjum rúmlega 2 milljarðar .
2000 | 2001 | Breyting | |
Tekjur alls: | 30.459 | 37.720 | 23,8% |
Fargjaldatekjur: | 12,492 | 14.839 | 18,8% |
Eyðsla í landinu: | 17.967 | 22.881 | 27,34% |
Þegar tekið er tillit til gengisbreytinga á milli ára og áætlunar um dreifingu tekna eftir myntum virðist sem gera megi ráð fyrir að raunaukning geti verið um 1-2% í gjaldeyristekjum á milli ára.
Magnús Oddsson 08.03 02.