Góður liðsmaður íslenskrar ferðaþjónustu hverfur af vettvangi
17.10.2008
Stephen Brown
Stephen A. Brown, sem starfað hefur fyrir Icelandair í Bandaríkjunum, Bretlandi og nú síðast sem svæðisstjóri í S.-Evrópu, mun láta af störfum hjá félaginu á næstu dögum.
Stephen er mörgum í íslenskri ferðaþjónustu vel kunnugur. Hann hefur frá upphafi verið ástríðufullur talsmaður íslenskrar ferðaþjónustu og óþreytandi við að vinna fyrir greinina á erlendri grundu. Þekkingar hans og einstakrar hjálpsemi mun verða sárt saknað.
Starfsfólk Ferðamálastofu vill þakka honum fyrir einstaklega gott samstarf og fyrir óeigingjarnt starf í þágu íslenskrar landkynningar á undanförnum áratugum.