Greiðslukortavelta erlendra ferðamanna jókst um 13% í júní
Greiðslukortavelta erlendra ferðamanna í júní jókst alls um 18,1% frá sama mánuði í
fyrra og nam næstum
9,8 milljörðum kr. Erlendir ferðamenn vörðu mestu í gistingu, næstmestu í verslun og þar næst í ýmsa
skipulagða ferðaþjónustu eins og skoðunarferðir og hvalaskoðun. Þetta kemur fram í samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar.
Fjórðungsaukning hjá veitingahúsum
Veitingahús njóta góðs af auknum ferðamannastraumi til landsins því ferðamenn greiddu rúmlega 1,1
milljarð kr. með greiðslukortum fyrir veitingar í júní sem er um 24% aukning frá júní í fyrra. Þá greiddu
erlendir ferðamenn næstum 1,8 milljarð. kr. með kortum sínum í verslunum hér á landi, sem var 13% hærri
upphæð en í júní í fyrra. Fjórðungsaukning var í erlendri kortaveltu í dagvöruverslunum og 17% aukning í
Fríhöfninni, svo dæmi séu tekin.
Útlendingar greiddu í júní 21 millj. kr. með kortum fyrir ferjuflutninga sem er aukning um 156% frá síðasta
ári. Líklega er þar um að ræða mikil aukning ferðamanna til Vestmannaeyja og um Breiðafjörð.
Kortavelta vegna gistingar á tjaldstæðum og öðrum gististöðum en hótelum og gistiheimilum, jókst um
119% í júní frá sama mánuði í fyrra. Erlend kortavelta á þessum gistisvæðum nam 9 milljónum í
júní
síðastliðnum sem er þó aðeins brot af greiðslum vegna hótelgistinga sem var um 2,5 milljarðar kr.
Þess ber að geta að kortavelta útlendinga sem kaupa farmiða eða pakkaferðir til Íslands frá heimalandi
sínu
eru ekki innifaldar í þessum tölum nema kortaveltan fari í gegnum íslenska færsluhirða. Þannig eru erlendar
greiðslur vegna flugferða hingað til lands og greiðslur til erlendra ferðaskrifstofa eða annarra milliliða ekki
meðtaldar. Þá eru úttektir á reiðufé úr hraðbönkum ekki innifaldar í þessum tölum.
Íslendingar eyða minna í ferðaþjónustu
Á meðan aukning er í erlendri greiðslukortaveltu verja Íslendingar minna til ferðaþjónustu hér innanlands. Í
júní var innlend kortavelta vegna ferðaþjónustu 6,6% minni en í sama mánuði í fyrra. Kortavelta Íslendinga
fyrir flugferðir í júní var 11,6% minni en í júní í fyrra. En kortavelta vegna gistiþjónustu jókst hins vegar um
8,4%. Það þarf þó ekki að vera vegna minni ferðalaga landsmanna því samkvæmt verðmælingu
Hagstofunnar var verð á flugferðum til útlanda um 2% lægra í júní síðastliðnum miðað við júní í fyrra.
Þessi
lækkun kann að skýra þessa lækkun á útgjöldum landsmanna til ferðaþjónustu.
Um kortaveltu ferðamanna
Rannsóknasetur verslunarinnar birtir mánaðarlega tölur um greiðslukortaveltu ferðamanna sundurliðaða
eftir útgjaldaliðum. Gögnunum er enn fremur skipt eftir því hvort um er að ræða erlend eða innlend
greiðslukort. Gögnin innihalda færslur bæði debet- og kreditkorta. Birtar eru upphæðir í
íslenskum krónum ásamt hlutfallsbreytingum frá fyrri mánuði og sama mánuði fyrra árs.
Gögnin eru fengin frá innlendum færsluhirðingaraðilum, sundurliðuð eftir svonefndum MCC kóðum. MCC
kóðarnir eru aftur greindir í flokka eftir því hvernig þeir eru taldir tengjast mismunandi greinum
ferðaþjónustu. Gögnin lýsa kortaveltu eftir kauptímabilum en ekki eftir uppgjörstímabilum og er samtalan því
eilítið frábrugðin þeim gögnum sem Seðlabankinn birtir.
Nánari upplýsingar veita Emil B. Karlsson (emil@bifrost.is, GSM 822 1203) og Pálmar Þorsteinsson
(palmar@bifrost.is, GSM 868 8578)