Heildarfjöldi seldra gistinátta árið 2016 ríflega 8,8 milljónir
Mynd: ©Ragnar Th. Sigurðsson
Seldar gistinætur árið 2016 voru ríflega 8,8 milljónir, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þar með talið áætlaðar óskráðar gistinætur seldar í gegnum Airbnb og sambærilegar vefsíður, sem Hagstofan áætlar nú í fyrsta sinn og birtir með tölum sínum. Gistinætur erlendra ferðamanna voru 89% af heildarfjölda gistinátta árið 2016.
Skipting eftir tegundum gistingar
Eftir tegundum gististaða voru flestar gistinætur á hótelum og gistiheimilum, 5,2 milljónir eða 59% allra gistinátta, og fjölgaði um 26% frá fyrra ári. Gistinætur á tjaldsvæðum voru 11% allra gistinátta og 30% á öðrum tegundum gististaða. Gistinætur seldar í gegnum Airbnb flokkast hér með öðrum tegundum gististaða ásamt annarri heimagistingu, íbúðagistingu, farfuglaheimilum og orlofshúsum í eigu annarra en stéttarfélaga og félagasamtaka.
Helstu niðurstöður
- Árið 2016 voru gistinætur á hótelum voru tvöfalt fleiri en 2013
- Bæði framboð og nýting hefur aukist
- Hagstofan áætlar að gistinætur seldar í gegnum Airbnb og sambærilegar síður, sem vantar inn í gistináttatalningu Hagstofunnar, hafi verið ríflega 1 milljón árið 2016
- Til að svara eftirspurn eftir aukinni svæðisbundinni tölfræði hefur verið birt ný veftafla með sundurliðun á heildarfjölda gistinátta eftir sveitarfélögum