Hópbílar hlutu starfsmenntaviðurkenningu SAF
Starfsmenntaviðurkenning Samtaka ferðaþjónustunnar var afhent í fyrsta sinn á Degi menntunar í ferðaþjónustu, sem haldin var á Grand Hóteli í gær. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra afhenti viðurkenninguna sem kom í hlut Hópbíla í Hafnarfirði.
Í frétt frá SAF segir að Hópbílar hafi með skýrri sýn lagt áherslu á mikilvægi starfsmenntunar í allri starfsemi sinni með það að markmiði að auka starfsánægju starfsmanna og síðast en ekki síst náð samkeppnisforskoti og arðsemi í rekstri fyrirtækisins þannig að til eftirbreytni sé.
Í rökstuðningi dómnefndar segir að einkum hafi eftirfarandi legið til grundvallar ákvörðunar hennar:
- Markviss stefna fyrirtækisins og fast verklag við að innleiða gæðakerfi þar sem umhverfis- og gæðamál eru höfð að leiðarljósi
- Fyrirtækið hefur náð ákveðnu samkeppnisforskoti með beinum hætti gegnum markvissa símenntunarstefnu
- Fyrirtækið hefur lagt sig fram um að standa vel að menntun og aðlögun erlendra starfsmanna
- Fyrirtækið sinnir af kostgæfni greiningu á þjálfunarþörf, markvissri nýliðafræðslu og leggur áherslu á að starfsmenn fái tækifæri til þess að þróast í starfi
- Fyrirtækið hefur nýtt sér markvisst starfsmenntasjóði í því skyni að ná betri árangri í starfsemi sinni
Í aðgerðaráætlun SAF á sviði fræðslu og menntamála kemur m.a. fram að eitt af höfuðmarkmiðum sé að bæta arðsemi og samkeppnishæfni fyrirtækja í ferðaþjónustu og að hafa áhrif á gildismat og viðhorf stjórnenda og starfsfólks til menntunar, símenntunar og þjálfunar. Dagur menntunar í ferðaþjónustu var liður í ofangreindum markmiðum, þ.e. að vekja athygli atvinnurekanda á mikilvægi menntunar, símenntunar og þjálfunar starfsfólks.
Á myndinni eru Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og Pálmar Sigurðsson frá Hópbílum.