Hvað getum við gert til að efla umhverfislæsi í kynningar- og upplýsingaefni fyrir erlenda markaði?
Ferðamálastofa, Íslandsstofa og Samtök ferðaþjónustunnar boða til umræðufundar á milli ferðaþjónustuaðila um umhverfislæsi í tengslum við kynningar- og upplýsingaefni fyrir erlenda markaði. Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 10. september kl. 10:30-12:00.
Hvað erum við að gera vel hvað getum við gert betur? Erum við að njóta, vernda og virða í kynningarefninu okkar? Hvaða skilaboð erum við að gefa umheiminum og hvaða skilaboð viljum við gefa? Getum við gert betur saman?
Dagskrá:
Hvað get ég gert? - Hlutverk ferðaþjónustunnar í verndun náttúruauðlinda
Andrés Arnalds, fagstjóri Landgræðslunnar
Að halda sér á veginum - hvernig er ferðamaðurinn upplýstur
Jón Gestur Ólafsson, gæða- umhverfis og öryggisstjóri Bílaleigu Akureyrar
Umræðustjóri
Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður
Skráning
Fundurinn er öllum opinn sem áhuga hafa á markaðssetningu og kynningu á Íslandi erlendis.
Vinsamlegast skráið þátttöku með því að senda tölvupóst á islandsstofa@islandsstofa.is.
Bein útsending
Hér verður hægt að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu: https://global.gotomeeting.com/join/910836069