Hvað væri Ísland án fjalla?
Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst árið 2002 alþjóðlegt ár fjalla. Af þessu tilefni standa Landvernd og Náttúrufræðistofnun Íslands fyrir kynningarátaki til að vekja athygli á mikilvægi fjalla í íslensku þjóðlífi.
Fjallgönguhappdrætti
Gefið hefur verið út veggspjald og efnt til samkeppni á Internetinu um að þekkja 10 fjöll og ganga á a.m.k. eitt þeirra. Síðan verða 20 heppnir þátttakendur dregnir úr pottinum þann 15. september nk. Á vefsíðunni Ár fjalla er að finna margvíslegan fróðleik um fjöll, m.a. um gerðir fjalla, um fjallaflóruna, um fjöll í myndlist og þjóðtrú, fjallgöngur o.fl. o.fl. Þar er einnig hægt að taka þátt í umræddri samkeppni. Stöðugt verður bætt við efni á þennan vef og í haust verður svo efnt til samkeppni og ferðahappdrættis meðal grunnskólabekkja og málþings um mikilvægi fjalla í íslensku þjóðlífi. Það er Herðubreið, drottning íslenskra fjalla, sem prýðir áðurnefnt veggspjald sem gefið hefur verið út til að vekja athygli á mikilvægi fjalla.
Myndatexti: Á heimasíðu Landverndar og Náttúrufræðistofnunar Íslands um ár fjalla 2002 er hægt að taka þátt í samkeppni. Sýndar eru myndir af 10 fjöllum og þeir sem geta nafngreint öll fjöllin og hafa þar að auki gengið á a.m.k. eitt þessara fjalla á árinu, geta verið með í samkeppninni. Eitt fjallanna sem þarf að þekkja er það sem myndin er af hér að ofan.