Hver er staðan? Upplýsingafundur vegna eldsumbrota í Holuhrauni
05.09.2014
Samtök Ferðaþjónustunnar í samstarfi við Almannavarnir, Ferðamálastofu og Íslandsstofu, boða til opins upplýsingafundar vegna eldsumbrota í Holuhrauni. Fundurinn verður haldinn 10. september kl. 15:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35.
Ferðaþjónustuaðilar eru hvattir til að láta sig málefnið varða og mæta á fundinn.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið saf@saf.is. Heitt á könnunni og allir velkomnir. Fundarstjóri er Grímur Sæmundsen, formaður SAF
Dagskrá:
- Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, útskýrir stöðuna á svæðinu og ræðir opnanir og lokanir.
- Helena Þ. Karlsdóttir, lögfræðingur hjá Ferðamálastofu, ræðir ábyrgð ferðaþjónustuaðila í ferðum þar sem áhætta er metin mikil.
- Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsstofu, kynnir verkefni í tengslum við erlend almannatengsl.