Inspired by Iceland tilnefnt til verðlauna
07.12.2010
Vefkubbur 142x102
Markaðsátakið Inspired by Iceland hefur verið tilnefnt til tvennra verðlauna á European Excellence Awards 2010 í flokki bestu markaðsherferða á Norðurlöndunum og krísusamskipta. Úrslitin verða tilkynnt í Prag 9. desember næstkomandi.
Verðlaunin eru alþjóðleg og veitt árlega í viðurkenningarskyni fyrir upplýsingamiðlun fyrirtækja og stofnanna í víðum skilningi; almannatengsl, markaðssetningu, uppbyggingu vörumerkjaímyndar og orðspor. Það er mikill heiður að vera valin en fimm eru tilnefndir í hverjum flokki og á Norðurlöndunum keppir herferðin við risa á borð við Coca Cola og Chiquita. Í flokki krísusamskipta keppir herferðin m.a. við SAAB og hergagnaframleiðandann BAE. Nánar um European Excellence Awards