Ísland einn besti áfangastaður veiðimanna
Ísland er meðal bestu áfangastaða veiðimanna, að mati lesenda Blinker, útbeiddasta veiðitímarists Evrópu. Verðlaun kennd við tímaritið, Blinker Award, voru veitt í fyrsta sinn síðastliðinn föstudag í Mannheim.
Þar voru einkum verðlaunaðar vörur fyrir veiðimenn sem að mati lesenda skara fram úr um þessar mundir. Að auki voru veitt veðlaun fyrir besti ferðaheildsala á sviði ferða fyrir stangveiðimenn og besti áfangastaðurinn með tilliti til upplifunar og gæða. Ì síðarnefnda flokknum hafnaði Ísland í 3ja sæti á eftir Noregi og Spáni. Komu þessi úrslit aðstandendum blaðsins nokkuð á óvart, þar sem Ísland hefur fyrst verið merkjanlegt á þessum markaði á síðustu ca. 3 árin.
?Þetta er skemmtileg viðurkenning á því starfi sem unnið hefur verið í uppbyggingu og markaðssetningu á þessum hluta ferðaþjónustu á Vestfjörðum síðustu misseri og hvatning til þeirra að halda áfram að vanda sig eins og kostur er,? segir Davíð Jóhannsson, forstöðumaður skrofstofu Ferðamálastofu í Mið-Evrópu.
Myndin er fengin á vef Hvíldarkletts á Suðureyri, fisherman.is