Ísland valið áfangastaður ársins á MATKA
Þorleifur Þór Jónsson tók á móti verðlaununum fyrir hönd Íslandsstofu en með honum
á myndinni er Pekka Mäkinen svæðisstjóri Icelandair ásamt öðrum verðlaunahöfum
sem hlutu verðlaun fyrir innanlands áfangastaði.
Ísland var valið sem erlendur áfangastaður ársins á MATKA ferðakaupstefnunni, sem nú stendur yfir í Finnlandi. Að valinu stóðu samtök finnskra ferðablaðamanna (Finnish Guild of Travel Journalists), sem í eru 60 helstu ferðablaðamenn Finnlands.
Þorleifur Þór Jónsson hjá Íslandsstofu segir í frétt á vef Íslandsstofu að verðlaunin sýni hvað Ísland er búið að koma sér vel á kortið í Norður Evrópu. Það eru 14 ár síðan reglubundið flug hófst frá Helsinki til Íslands, fyrst eingöngu sem sumarflug, en núna er flogið allt árið og eru allt að ellefu brottfarir á viku yfir háönnina. Það er því mikil sókn á þessum markaði, segir Þorleifur, sem stóð vaktina á þjóðarbás Íslandsstofu þar sem átta ferðaþjónustufyrirtæki frá Íslandi taka þátt.
Að sögn Þorleifs er það sambland hrífandi menningar, fjölbreytilegra áfangastaða og skapandi ferðaþjónustu sem virðast hrífa einna mest ef marka má kaupstefnugestina. Þá hefur sú vinna sem aðilar ferðaþjónustunnar hafa lagt í síðustu árin einnig skilað sér vel en þannig hefur tekist að vekja eftirtekt og halda Íslandi ofarlega í hugum fólks með samstilltu átaki.
Ísland er í hugum margra ekki beinlínis áfangastaður heldur miklu frekar hluti af ferðalaginu sjálfu og þeim upplifunum sem því fylgja. Ísland er þannig spennandi, framandi og miklu stærri hluti af lífi fólks en margir aðrir staðir og Ísland missir ekki það hlutverk eftir að ferðalaginu líkur. Tengslin halda sér segir Þorleifur.