Íslandskynning í tengslum við frumsýningu The Bucket List
Í dag verður frumsýnd í Bandaríkjunum kvikmyndin ?The Bucket List? sem skartar stórleikurunum Jack Nicholson og Morgan Freeman í aðalhlutverkum. Í tengslum við myndina hefur verið ráðist í kynningu á Íslandi.
Útbúnar hafa verið dagblaðaauglýsingar þar sem lesendum gefst kostur á að taka þátt í leik og vinna ævintýraferð til Íslands fyrir tvo. Kynningunni er beint að Los Angeles, Chigago og Philadelphia. Þetta er raunar ekki í fyrsta skipti sem skrifstofa Ferðamálastofu í Bandaríkjunum nota þessa leið við markaðssetningu á Íslandi. Í maí síðastliðnum var einmitt farið í svipaða kynningu í tengslum við myndina ?Shrek the Third? og þótti hún gefa góða raun. Þá freistuðu tugþúsundir Bandaríkjamanna gæfunnar í von um að krækja sér í ókeypis ferð til Íslands og búist er við því að svipað verði upp á teningnum nú, að sögn Einars Gústavssonar, forstöðumanns skrifstofu Ferðamálastofu í New York.