Kallað eftir erindum á ráðstefnu um tölfræði í ferðaþjónustu
12.04.2012
Tölfræðisráðstefna
Auglýst hefur verið eftir erindum á ráðstefnu um tölfræði í ferðaþjónustu (Global Forum on Tourism Statistics) sem haldin verður í fyrsta sinn á Íslandi dagana 14-16 nóvember 2012.
Vakin er athygli á því að frestur til að senda inn erindi fyrir ráðstefnuna rennur út 30. apríl n.k.
Ágrip skal senda inn í gegnum heimasíðu ráðstefnunnar og skulu þau ekki vera lengri en 400 orð.
Ráðstefnan sem er haldin annað hvert ár af EUROSTAT (Hagstofu Evrópusambandsins) og ferðamálanefnd OECD er á þessu ári haldin í samvinnu við ráðuneyti ferðamála (iðnaðarráðuneytið), Hagstofu Íslands, Ferðamálastofu og Rannsóknarmiðstöð ferðamála.
Allar nánari upplýsingar má finna á vef ráðstefnunnar