Könnun um aukna og betri umhverfisfræðslu til ferðafólks
16.12.2005
Geysir
Með styrk frá umhverfis- og samgönguráðuneyti hefur Landvernd fengið það hlutverk að leiða samstarf hagsmunaaðila um hvernig megi auka og bæta fræðslu til ferðamanna um umhverfismál. Verkefnið hefur fengið vinnuheitið ÍslandsGátt.
Liður í þessu samstarfi er könnun sem nú er hægt að taka þátt í á vef Landverndar. Niðurstaðan verður birt í skýrslu sem er verið að taka saman um fyrri lotu verkefnisins og verður fjallað nánar um í byrjun næsta árs.
Meðal spurninga sem leitað er svara við er:
- Hvernig mætum við þörfum erlendra og innlendra ferðamanna fyrir fræðslu um íslenska náttúru og umgegni við hana?
- Hvernig getur sameiginleg gátt (móttaka) að íslenskri náttúru skapað ný viðskiptatækifæri fyrir hagsmunaaðila í ferðaþjónustu?
Nánar um verkefnið