Kynningarfundir um þróunarverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu
Þróunarverkefni á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu verða kynnt á fundum um allt land næstu daga. Verkefnið, sem fengið hefur nafnið Gáttir, er eins og fram hefur komið vöruþróunarverkefni sem hefur það að markmiði að fjölga arðbærum vörum/þjónustu á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu og vinna úr sérkennum staða á sviði menningar.
Verkefnið er til 2ja ára.
Kynningarfundirnir verða á eftirtöldum stöðum:
Vestmannaeyjar | 10 júní | Café María | kl. 13:00-16:00 |
Ísafjörður | 16. júní | Hótel Ísafjörður | kl. 09:30-12:30 |
Stykkishólmur | 18. júní | Hótel Stykkishólmur | kl. 11:00-14:00 |
Varmahlíð | 19. júní | Hótel Varmahlíð | kl. 10:00-13:00 |
Húsavík | 20. júní | Fosshótel Húsavík | kl. 09:00-12:00 |
Seyðisfjörður | 23. júní | Hótel Aldan | kl. 13:30-16:30 |
Höfn | 24. júní | Hótel Höfn | kl. 13:00-16:00 |
Á fundunum fjalla sérfræðingar um menningartengda ferðaþjónustu, vöruþróun og frumkvöðlar í uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu segja frá reynslu sinni, auk þess sem verkefnið verður kynnt ítarlega. Fundirnir eru opnir öllum áhugasömum um vöruþróun á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu.
Dagskrá:
1. Kynning á verkefni ? Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, Impru á Nýsköpunarmiðstöð
2. Vöruþróunarferlið - Heiður Björnsdóttir, ParX
3. Áfangastaðir í menningartengdri ferðaþjónustu - Háskólinn á Hólum
4. Uppbygging Landnámsseturs ? Kjartan Ragnarsson, Landnámssetrinu
5. Spurningar og umræður
Frekari upplýsingar veita:
Sigríður Ó. Kristjánsdóttir verkefnastjóri hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð í síma 450-4050 netfang: sirry@nmi.is eða Alda Þrastardóttir, verkefnastjóri hjá Ferðamálastofu í síma 464-9990, netfang: alda@icetourist.is
Nánari upplýsingar hér á vef Ferðamálastofu og hjá Impru.
Verkefnið er á vegum Iðnaðarráðuneytisins og er unnið af Impru á Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofu