Lögfræðiálit vegna framkvæmda á ferðamannastöðum
Undanfarna áratugi hefur ferðafólki sem sækir Ísland heim fjölgað verulega og samhliða hafa Ferðamálaráð og fleiri unnið að úrbótum og ýmsum aðgerðum til að bæta aðgengi og vernda náttúruna víða um land. Í kjölfar þess hefur vaknað umræða um bótaskyldu vegna hugsanlegra slysa sem kynnu að verða á viðkomandi stöðum og hvort hugsanlegt sé að framkvæmdaaðili geti verið gerður ábyrgur vegna þess og jafnvel Ferðamálaráð vegna þeirra svæða þar sem veittir hafa verið styrkir til framkvæmda.
Ferðamálaráð leitaði álits lögfræðings á málinu og meðal annars var spurt; hver er ábyrgð framkvæmdaaðila eftir að viðkomandi hefur lagfært eða bætt aðgengi að tilteknu svæði? Hvað með ef t.d. er girt fyrir hættur og hvað ef ekki er girt? Hvað með merkingar á svæðum, hvernig þurfa þær að vera orðaðar og hvað þarf að koma fram til að koma í veg fyrir að framkvæmdaraðili sé ábyrgur?
Að áliti lögfræðings ber framkvæmdaaðili enga ábyrgð á slysum sem verða á slíkum stöðum nema slysið verði rakið beint til framkvæmdanna. Jafnframt þarf að vera hægt að sýna fram á, að þannig hafi verið staðið að framkvæmdinni að hún sem slík hafi skapað slysahættu. Búnaður í eigu viðkomandi aðila á ferðamannastöðum sem hugsanlega gætu orsakað bótaskylt slys yrði að öllum líkindum á ábyrgð framleiðenda búnaðarins og/eða verktaka sem annast framkvæmdina. Í reynd má fullyrða að öll slys sem kunna að verða á ferðamannastöðum séu annaðhvort óhappatilvik eða tilkominn fyrir atbeina hins slasaða sjálfs.
Varðandi merkingar, tilkynningar og viðvaranir á viðkomandi stöðum þá nægja samkvæmt lögfræðiálitinu allar venjubundnar merkingar eins og tíðkast hefur. Hinsvegar getur framkvæmda- eða umsjónaaðili ekki undanþegið sig ábyrgð varðandi slys sem hlytist af framkvæmdinni eða skorti á viðhaldi.
Hvað varðar önnur lögfræðileg atriði þá er það helst sem þarf að skoða að eignarhald er með mismunandi hætti á ferðamannasvæðum og að sama skapi ábyrgð þeirra sem hafa umsjón með þeim.
Það kemur að sumu leyti í kjölfar þessarar niðurstöðu að Ferðamálaráð gerir meiri kröfur um að búnaður og efnisval, sem veittir eru styrkir til, sé samkvæmt stöðlum og uppfylli kröfur sem gerðar eru samkvæmt lögum.
Frá Hraunfossum en þar hefur Ferðamálaráð staðið fyrir verulegum úrbótum
og ýmsum aðgerðum til að bæta aðgengi og vernda náttúruna.
Ljósmynd HA.