Málþing um akstur utan vega
30.04.2005
World Travel Market í London
Umhverfisstofnun og Landvernd munu laugardaginn 16. apríl, gangast fyrir málþingi um akstur utan vega. Málþingið verður haldið í Norræna húsinu í Reykjavík kl. 13:00-16:45.
Á málþinginu verður fjallað um akstur utan vega frá ýmsum sjónarhornum með pallborðsumræðum í lokin. Megináhersla verður lögð á hvar vandinn liggur og hvað er til ráða. Öllum er velkomið að mæta. Dagskrá verður birt á vef Umhverfisstofnunar.
Mynd af vef Umhverfisstofnunar