Málþing um atvinnuuppbyggingu í Borgarbyggð
Laugardaginn 26. febrúar verður haldið málþing um atvinnuuppbyggingu í Borgarbyggð. Málþingið er haldið í Reykholti en eins og dagskráin ber með sér er veruleg áhersla á þátt ferðaþjónustunnar og uppbyggingu sem henni tengist.
Dagskrá:
13:00-13:20 Hvert viljum við stefna.
Jónína Erna Arnarsdóttir, formaður Borgarfjarðarstofu.
13:20-13:40 Atvinnuuppbygging í sátt við umhverfið.
Ólafur Þór Gunnarsson, alþingismaður og fulltrúi í Umhverfisnefnd Alþingis.
13:40-14:00 Langjökull, hugmyndir um ísgöng og aðstöðumál.
Reynir Sævarsson frá verkfræðistofunni EFLA
14:00-14:20 Miðaldarböð við Deildartunguhver.
Kjartan Ragnarsson, kynnir nýjustu hugmyndir.
14:20-14:40 Farmfarafélag Borgarfjarðar.
Óskar Guðmundsson. Nýjar hugmyndir um atvinnuuppbyggingu í Reykholti og
nágrenni.
14:40-15:00 Ferðaþjónusta –tálsýn eða raunveruleiki.
Elías Gíslason, forstöðumaður hjá Ferðamálastofu.
15:00-15:30 Kaffi
15:30-15:50 Heilsársvegir að Langjökli og Uxahryggjaleið.
Magnús V. Jóhannsson, svæðisstjóri Norðvesturssvæðis hjá Vegagerðinni.
15:50-16:10 Aðalskipulag Borgarbyggðar, stjórntæki til atvinnuuppbyggingar.
Ragnar Frank Kristjánsson, forseti sveitastjórnar.
16:10-16:30 Umræður og fyrirspurnir/ samantekt.
16:30 Fundarslit.