Markaðsátak í ferðaþjónustu haustið 2009
Ferðamálastofa í samstarfi við iðnaðarráðuneytið, Útflutningsráð og Reykjavíkurborg, auglýsir eftir tillögum frá íslenskum ferðaþjónustuaðilum að samstarfsverkefnum til markaðssetningar Íslands á tímabilinu október til desember 2009. Um er að ræða verkefni sem dreifast á meginmarkaðssvæði íslenskrar ferðaþjónustu í Bretlandi, á meginlandi Evrópu, í N-Ameríku og á Norðurlöndum.
Heildarráðstöfunarfé/-framlag til samstarfsverkefnanna eru 50 milljónir króna sem komið getur til útgreiðslu í fyrsta lagi 1. nóvember 2009. Mótframlag umsóknaraðila skal vera að lágmarki tvöfalt hærra en framlag Ferðamálastofu (2 kr. á móti einni). Með þessu móti er gert ráð fyrir að heildarframlag til átaksins nemi að lágmarki 150 millj. kr.
- Lágmarksframlag til eins verkefnis miðast við kr. 5.000.000,-
- Hámarksframlag til eins verkefnis miðast við kr. 10.000.000,-
Eftirfarandi forsendur verða lagðar til grundvallar mati á verkefnum:
- Áhersla verði á fjölmenn svæði/borgir sem staðsettar eru innan tiltölulega stuttrar vegalengdar frá flugvöllum í Skandinavíu, Bretlandi, meginlandi Evrópu og Bandaríkjunum sem íslensk félög fljúga til og frá á tímabilinu október 2009 til mars 2010.
- Um sé að ræða markaðs- og söluverkefni, sem hvetji neytendur til Íslandsferðar í haust eða vetur.
- Megináhersla sé á að nota kynningu/auglýsingar á Internetinu og í dagblöðum.
- Markmið verkefnis skulu vera skýr, hnitmiðuð og vel skilgreind.
- Þeir markhópar sem verkefnið beinist að skulu skilgreindir með skýrum hætti.
- Fjárhagsáætlun sé skýr og uppsett í umsókn.
- Tímaáætlun skal tíunduð en gert er ráð fyrir að fjármunir nýtist í síðasta lagi til markaðssetningar í mars 2010.
- Lagt verði mat á það hverju verkefnið geti hugsanlega skilað, m.a. með tilliti til útbreiðslu þeirra miðla sem um ræðir og markhópa sem verkefnið beinist að.
- Greint verði frá því með hvaða hætti árangur verði metinn að verkefni loknu og hvaða mælikvörðum verði beitt. Kallað verður eftir slíku árangursmati.
- Um sé að ræða verkefni sem ekki hefur þegar verið gert ráð fyrir í markaðsáætlunum umsækjenda.
- Mótframlag umsækjanda í krónum talið
- Raunhæfi framkvæmdaáætlunar umsóknarinnar
- Annarra markaðsaðgerða sem eru í framkvæmd á sama tíma
Umsóknareyðublað
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt að nálgast hér að neðan. Umsóknum sé skilað á íslensku og til þeirra vandað. Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2009. Ekki verður tekið tillit til annarra gagna en umsóknarinnar sjálfrar.
Umsóknir verða metnar af úthlutunarnefnd á grundvelli ofangreindra atriða og er gert ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir í síðasta lagi 10. október 2009. Ákvarðanir verða teknar á grundvelli ofangreindra forsendna og verður fyllsta jafnræðis gætt við mat á tillögum. Framlag Ferðamálastofu getur aldrei numið hærra hlutfalli en 33% af heildarútgjöldum vegna verkefnis. Ferðamálastofa hefur umsjón með verkefninu og samningagerð við samstarfsaðilana.
- Sækja umsóknareyðublað (Excel)
-Byrjið á að vista eyðublaðið á eiginn tölvu með því að smella á hlekkinn hér fyrir ofan og velja "Save"
- Auglýsing sem PDF til útprentunar