Menning á sjálfbærum áfangastað
Markaðsráð Hríseyjar stendur fyrir málþinginu ,,Menning á sjálfbærum áfangastað? í Hrísey laugardaginn 23. maí kl. 10:30 ? 15:00.
Á undanförnum árum hefur verið unnið að því að skapa sjálfbært samfélag í Hrísey. Frá upphafi verkefnisins hefur verið hugað að því hvernig hægt sé að nýta verkefnið til atvinnusköpunar auk þess að koma á framfæri sérstöðu svæðisins. Hefur í því sambandi helst verið litið til ferðaþjónustunnar. Á málþinginu verður skoðuð uppbygging menningarstarfs á landsbyggðinni í tengslum við ferðaþjónustu og sjálfbært samfélag.
Ferjan fer frá Ársskógssandi kl 09:30. Frá Akureyri eru 35 km á Árskógssand sem er um 25. mín akstur. Staðfesting á þátttöku gildir sem greiðsla í ferjuna. Fulltrúi Markaðsráðs Hríseyjar tekur á móti gestum á bryggjunni og fylgir þeim í Íþróttamiðstöðina þar sem málþingið er haldið. Farið verður með ferju til baka kl. 15:00.
Dagskrá:
kl. 09:30 | Ferja fer til Hríseyjar |
kl. 09:45 | Komið til Hríseyjar |
kl. 10.30 | Setning málþings |
kl. 10:40 | ,,Þróun og uppbygging menningarstarfs á landsbyggðinni? Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða |
kl.11:00 | ,,Sjálfbær áfangastaður ? Hvað er nú það ?? Stefán Gíslason, verkefnisstjóri Staðardagskrár 21 á Íslandi |
kl.11:20 | ,,Uppbygging ferðamannastaða með sjálfbærni að leiðarljósi? Guðrún Bergmann |
kl.11:40 | Sýn listamanns í uppbyggingu skapandi samfélags á landsbyggðinni |
kl.12:00 | Hádegishlé ? súpa, brauð og göngutúr |
kl.13:00 | Umræður og fyrirspurnir |
kl.13:30 | Umræðuhópar ? skipt í fjóra hópa sem fyrirlesarar leiða. |
kl.14:00 | Kynning á umræðum í hópum |
kl.14:30 | Málþingi slitið |
kl.15:00 | Ferja fer frá Hrísey |
Skráning fer fram á netfanginu lindamar@internet.is
Þátttökugjald er kr. 2.000, innifalið í því er ferja fram og til baka og léttur hádegisverður.