Morgunverðarmálþing - Aðgengi, umgengni og framtíð ferðamannastaða á Íslandi
10.10.2012
morgunverðarmálþing - auglýsing
Í tilefni af 40 ára afmæli Félags leiðsögumanna er boðað til málþings 26. október sem ber yfirskriftina: Aðgengi, umgengni og framtíð ferðamannastaða á Íslandi. Málþingið er haldið á Grand Hótel kl. 8-10:30.
Frummælendur verða fulltrúar frá ráðuneyti ferðamála, Landvernd, Sambandi íslenskra sveitafélaga, Háskóla Íslands og frá Ferðamálastofu.
Aðgangur og morgunverður kr. 1000.
Vegna skipulagningar þarf að tilkynna þátttöku á netfangið info@touristguide.is fyrir 25. október.