Nám fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu
25.08.2009
NOW2003
Hjá Háskólanum í Reykjavík, Opna háskólanum, stendur nú yfir skráning í nám fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu. Nefnist það ?Stjórnun og forysta í ferðaþjónustu" og er haldið í samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar.
Námið hefst 23. september, lýkur 9. desember 2009 og er í heild 56 klukkustundir. Námið samanstendur af 6 námskeiðum og markmið þess eru að:
- Efla almenna stjórnunar- og leiðtogahæfni þátttakenda
- Veita stjórnendum betri skilning á eigin stjórnunarstíl
- Kynna hagnýtar og sannreyndar aðferðir og vinnubrögð sem ýta undir stjórnunarlegan árangur
- Skapa sameiginlegan vettvang til tenglsamyndunar milli stjórnenda í ferðaþjónustu
Nánari upplýsingar og skráning