Námskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva
Ferðamálastofa og upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík gangast fyrir námskeiði fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva þriðjudaginn 7 júní. Að þessu sinni verður námskeiðið haldið á Grand Hótel (salurinn heitir Teigur) og hefst það kl. 12:45. Ferðamálastofa hefur haldið námskeið sem þetta fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva allt frá árinu 1993.
Til að jafna kostnað á milli upplýsingamiðstöðva mun Ferðamálstofa greiða fyrir ferðakostnað þátttakanda sem koma lengra að (senda upplýsingar á elias@ferdamalastofa.is um hvaða flug á að skrá ykkur í eða hafa samband við Elías í síma 535 5510 ), annar kostnaður verður greiddur af viðkomandi upplýsingamiðstöð. Dagskráin hefst kl.12:45 þriðjudaginn 7. júní og lýkur kl. 16:00 þannig að flestir sem koma og fara með flugi geta farið fram og til baka samdægurs.
Skráning
Þátttaka tilkynnist fyrir 6. júní. Skráning fer fram hér á vefnum.
Dagskrá:
Dags: Þriðjudaginn 7. júní
Staður: Grand Hótel, Teigur (nafnið á salnum)
Tími: 12.45 - 16.15
12:45 – 13:00 Skráning þátttakenda og afhending gagna
13:00 – 1310 Eru upplýsingamiðstöðvar mikilvægar?
Elías Bj Gíslason, forstöðumaður þróunarsviðs Ferðamálastofu.
13:10 – 13:40 Daglegt starf á upplýsingamiðstöð
Drífa Magnúsdóttir, verkefnastjóri upplýsingamiðstöð Reykjavíkur
13:40 – 14.00 Handbók og gagnagrunnur Ferðamálastofu
Halldór Arinbjarnarson, upplýsingastjóri Ferðamálastofu
14:00 – 14:45 Öryggi ferðamanna á Íslandi og vefurinn www.safetravel.is
Jónas Guðmundsson, verkefnastjóri Landsbjargar
14:45 – 15:00 Kaffi / te
15:00 – 15:50 SAMstarfsmenn
Örn Árnason, leikari
15:50 Samantekt og námskeiðslok.
Þátttaka tilkynnist fyrir 6. júní. Skráning fer fram hér á vefnum.