Námskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva
Undanfarin ár hefur Ferðamálastofa staðið fyrir námskeiðum fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva. Verður svo einnig í ár. Síðustu tvö árin hafa námskeiðin verið haldin í gegnum fjarfundarbúanað en skipuleggjenum þykir nú kominn tími til að fólk hittist augliti til auglitis og verður námskeiðið haldið á Kornhlöðuloftinu 7 júní næstkomandi.
Mikilvægt er að a.m.k. nýtt starfsfólk upplýsingamiðstöðva komi á námskeiðið. Þýðingarmikið er að skapa tengsl á milli stöðva auk þess sem yfirbragð þeirra verður líkara innbyrðis ef sem flestir starfsmenn hafa setið námskeið.
Þátttaka tilkynnist í síma 464- 9990 eða á netfangið: upplysingar@icetourist.is
fyrir 2. júní nk.
Mynd: Veitingahúsið Lækjarbrekka en Kornhlöðuloftið
er á efri hæð hússins þar á bakvið.
Námskeiðsgjald er kr. 3.900,- pr. þátttakanda.
Nánari upplýsingar og dagskrá
Dags: Miðvikudaginn 7. júní 2006
Staður: Kornhlöðunni Bernhöftstorfu, Reykjavík (veitingahúsið Lækjarbrekka)
Tími: 12.45 - 17.00
Þátttökugjald: kr. 3.900,-
12.45 - 13.00 Skráning þátttakenda. Afhending gagna
13.00 - 13.30 Þeir koma, og hvað með það, fyrir hverja eru upplýsingamiðstöðvar?
Elías Bj Gíslason, forstöðumaður upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálastofu.
13.30 - 14.05 Hlutverk upplýsingamiðstöðva og hlutverk starfsmanna upplýsingamiðstöðva.
Pétur Rafnsson, verkefnisstjóri Ferðamálastofu.
14:05 - 14.15 Handbók Ferðamálastofu.
Elín Svava Ingvarsdóttir, verkefnisstjóri Ferðamálastofu
14.15 - 14.45 Kaffi
14.45 - 16.30 Viðhorf er aðalatriðið í þjónustu!
Margrét Reynisdóttir, stjórnunar- og markaðsfræðingur
16.30 Samantekt og námskeiðslok
Þátttaka tilkynnist í síma 464- 9990 eða á netfangið: upplysingar@icetourist.is fyrir 2. júní n.k.