NATA auglýsir eftir styrkumsóknum
Nú hefur verið auglýst eftir umsóknum um styrki frá NATA - Samstarf á sviði ferðamála milli Grænlands, Íslands og Færeyja. Allir sem áhuga hafa á bættum samskiptum á sviði ferðamála milli landanna þriggja geta leitað eftir aðstoð við að fjármagna verkefni, hugmyndir, ferðir eða því um líkt.
Umsóknir skulu fela í sér samstarf milli tveggja af löndunum þremur hið minnsta.
Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum:
- Menntun
Dvöl til að kynna sér aðstæður, faglegar námsferðir, skólaferðalög, menntun á sviði ferðamála, rannsóknir o.s.frv. - Þróun ferða
Siglingar, þemaferðir, stuttar heimsóknir (short break) o.s.frv. - Samstarf þjóða í milli
Menningartengdir viðburðir, skólaferðir, íþróttaferðir, vinabæjartengsl o.s.frv. - Markaðssetning og skilgreining ferðamennsku
Leita má eftir stuðningi við verkefni, ferðir eða starfsemi sem fer fram fyrir árslok 2009. Allar umsóknir skulu vera á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má hér neðar á síðunni. Sem fylgiskjöl með umsókninni skal leggja fram nákvæma útlistun á verkefni, svo og fjárhagsáætlun. Umsóknir skulu vera á dönsku eða ensku og sendast til:
NATA c/o
Ferðamálastofa
Lækjargata 3,
101 Reykjavík
Lokafrestur til að senda umsóknir er til 20. febrúar 2009.
-Hægrismellið á tenglana hér fyrir neðan og veljið "Save Target As" til að vista umsóknareyðublöðin á eigin tölvu.