Nýr forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða
16.02.2006
Stjórn Markaðsstofu Vestfjarða ákveðið að ráða Jón Pál Hreinsson, Ísafirði, til að taka við starfi forstöðumanns Markaðsstofu Vestfjarða. Jón Páll er með MSc gráðu í alþjóðaviðskiptum og starfaði síðast sem svæðisstjóri Eimskips fyrir Vestfirði.
Í fréttatilkynningu kemur fram að Jón Páll er með víðtæka starfsreynslu á sviði markaðsmála og þekkir vel til aðstæðna á Vestfjörðum. Jón Páll hefur komið að ferða- og félagsmálum m.a. með setu í framkvæmdaráði Skíðavikunnar, stjórn HSV og er einn af aðalhvatamönnum Mýrarboltafélags Íslands. Stjórn Markaðstofu lýsir ánægju sinni með ráðningu Jóns Páls og horfir bjartsýnum augum til öflugrar starfsemi Markaðsstofu Vestfjarða.