Nýr kortavefur um Ísland
![Kort](/static/news/2891.jpg)
Opnaður hefur verið nýr kortavefur um Ísland, Map24.is. Þar er hægt að leita að heimilsföngum, fá vegvísun milli staða, finna og bóka hótel ofl. Að vefnum stendur fyrirtækið Loftmyndir ehf í samvinnu við MapSolute og er vefurinn öllum opinn til einkaafnota.
Kortin af Íslandi eru hluti af nýum kortagrunni Loftmynda ehf. sem í dag þekur allt landið. Hægt er að fletta upp í heimilsfangagrunni Loftmynda ehf. þar sem skráð er nákvæm staðsetning yfir 99% heimilsfanga á Íslandi, að því er segir í frétt frá fyrirtækinu. Hægt að fá vegvísun milli staða eða jafnvel landa, hvaða leið er t.d. best að aka ef lagt er af stað frá Laugavegi 13 til Þingvalla.
Á Map24.is er líka hægt að skoða kort af Evrópu og Ameríku og fá akstursleiðbeiningar. Raunar má á vefnum má finna nákvæm götukort af öllum helstu viðkomustöðum ferðaglaðra Íslendinga.
Hér að neðan er til gamans sett inn leiðarlýsing af vefnum á því hvernig komast má á milli starfsstöðva Ferðamálastofu á Íslandi, þ.e. frá Lækjargötu 3 í Reykjavík að Strandgötu á Akureyri. Samkvæmt vefnum tekur ferðalagið reyndar nærri 13 klukkustundir, sem væntanlega er ansi ríflega áætlað.
Skoða kortavef
Lækjargata3, Reykjavík-Strandgata, Akureyri
Upphaf leiðar á Skothúsvegur og ekið í átt að Bankastræti, 21 m.
Ekið af Skothúsvegur í stefnu á Bankastræti, 45 m. 0 min 66 m
Ekið af Bankastræti í stefnu á Austurstræti, 17 m. 0 min 83 m
Ekið af Austurstræti í stefnu á Lækjargata, 55 m. 0 min 138 m
Ekið af Lækjargata og beygt til hægri inn á Hverfisgata, 1.04 km. 2 min 1.18 km
Ekið af Hverfisgata og beygt til hægri inn á Snorrabraut, 77 m. 2 min 1.26 km
Ekið af Snorrabraut í stefnu á Borgartún, 129 m. 3 min 1.39 km
Ekið af Borgartún í stefnu á Skúlagata, 283 m. 3 min 1.67 km
Ekið af Skúlagata og beygt til hægri inn á Höfðatún, 49 m. 3 min 1.72 km
Ekið af Höfðatún í stefnu á Laugavegur, 685 m. 5 min 2.40 km
Ekið af Laugavegur í stefnu á Kringlumýrarbraut, 261 m. 5 min 2.67 km
Ekið af Kringlumýrarbraut og beygt til hægri inn á Háaleitisbraut, 1.07 km. 7 min 3.74 km
Ekið af Háaleitisbraut og beygt til hægri inn á Miklabraut, 2.16 km. 11 min 5.90 km
Ekið af Miklabraut í stefnu á Ártúnsbrekka, 863 m. 13 min 6.77 km
Ekið af Ártúnsbrekka í stefnu á Vesturlandsvegur, 10.04 km. 33 min 16.80 km
Ekið af Vesturlandsvegur í stefnu á Hringvegur, 56.91 km. 02:26 h 73.71 km
Ekið af Hringvegur í stefnu á Vesturlandsvegur, 421 m. 02:26 h 74.13 km
Ekið af Vesturlandsvegur og beygt til hægri inn á Borgarbraut, 1.88 km. 02:30 h 76.01 km
Ekið af Borgarbraut í stefnu á Hringvegur, 167.55 km. 08:04 h 243.56 km
Ekið af Hringvegur og beygt til hægri inn á Norðurlandsvegur, 973 m. 08:05 h 244.53 km
Ekið af Norðurlandsvegur í stefnu á Hringvegur, 140.47 km. 12:44 h 385.00 km
Ekið af Hringvegur í stefnu á Hörgárbraut, 150 m. 12:45 h 385.14 km
Ekið af Hörgárbraut í stefnu á Borgarbraut, 277 m. 12:45 h 385.42 km
Ekið af Borgarbraut í stefnu á Hörgárbraut, 1.79 km. 12:49 h 387.21 km
Ekið af Hörgárbraut í stefnu á Glerárgata, 819 m. 12:50 h 388.03 km
Ekið af Glerárgata og beygt til hægri inn á Strandgata, 139 m. 12:51 h 388.17 km
Áfangastaður Strandgata.