Rannsóknaráætlun Ferðamálastofu 2022-2024
Í reglugerð nr. 20/2020 um gagnaöflun og rannsóknir á sviði ferðamála er kveðið á um að Ferðamálastofa skuli móta og láta framkvæma rannsóknaráætlun til þriggja ára í senn. Rannsóknaráætlun stofnunarinnar fyrir tímabilið 2022-2024 liggur nú fyrir og verið staðfest af ferðamálaráðherra. Áætlunina má nálgast hér að neðan.
Rannsóknaráætluninni er ætlað að kveða á um þá gagnaöflun, greiningar og rannsóknir sem stjórnvöldum er nauðsynleg til að taka stefnumótandi ákvarðanir um uppbyggingu og þróun ferðaþjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi.
Ellefu meginverkefni
Í áætluninni er m.a. fjallað um þau ellefu meginverkefni sem Ferðamálastofa var með í vinnslu á síðari hluta árs 2021 og ná inn á tímabil rannsóknaráætlunar fyrir árin 2022–2024. Þannig er ekki gert ráð fyrir að auglýst verði ný verkefni til framkvæmda á árunum 2022–2024. Sum af þeim verkefnum sem eru í vinnslu eru ótímabundin í þeim skilningi að reiknað er með að þau séu hluti af reglulegri starfsemi Ferðamálastofu til frambúðar þó á þeim kunni að verða einhverjar breytingar. Þetta á ekki hvað síst við um öflun, varðveislu, greiningu og miðlun grundvallargagna. Önnur verkefni eru tímabundin og ætlunin er að ljúka þeim með tiltekinni afurð eða afurðum sem nýtast munu bæði í starfi Ferðamálastofu og til að ná samfélagslegum markmiðum ferðaþjónustunnar.
Verkefnin 11 eru þessi:
- Fjöldi ferðamanna
- Landamærakönnun: Lýðfræði, ferðahegðun, upplifun og útgjöld ferðamanna
- Könnun á viðhorfum Íslendinga til ferðafólks og ferðaþjónustu
- Könnun á ferðahegðun Íslendinga
- Könnun á ferðahegðun erlendra gesta á völdum þéttbýlisstöðum
- Dreifing ferðamanna um landið
- Greining á fjárhag og rekstri fyrirtækja í ferðaþjónustu
- Gagnagrunnur ferðaþjónustunnar
- Aðlögunarhæfni og seigla í ferðaþjónustu. Hvernig á að mæta áföllum? Hvernig er unnt að efla þrautseigju í greininni?
- Spár um umsvif í ferðaþjónustu
- Þjóðhagslíkan fyrir ferðaþjónustu: Tæki til högg- og aðgerðagreininga og hagspáa
Ráðgjöf um rannsóknarverkefni 2022-24
Liður við undirbúning og gerð rannsóknaráætlunarinnar er aðkoma ráðgefandi nefndar um gagnaöflun og rannsóknir. Með samsetningu nefndarinnar er leitast við að draga að vísindalega þekkingu, kunnáttu og sérfræði hagsmunaðila í greininni. Kynna má sér starf nefndarinnar hér að neðan.