Samráðsfundur með markaðsstofum landshlutanna
Ferðamálastofa boðaði í liðinni viku til samráðsfundar Ferðamálastofu og markaðsstofanna um landið. Tilgangurinn var meðal annars að fara yfir fyrirhugað markaðsátak á vetrarmánuðum sem kynnt var á dögunum og leggja grunn aða auknu samstarfi Ferðamálastofu og markaðsstofanna.
Blaðamannaheimsóknir eru mikilvægur þáttur í |
Koma blaðamannaheimsóknum í fastara form
Hluti fjármagnsins verður nýttur til að fylgja átakinu eftir, en mat Ferðamálastofu er að það fé verði best nýtt í blaðamannaheimsóknir og kynningarmót íslenskrar ferðaþjónustu og erlendra birgja. Á fundinum með markaðsstofum landshlutanna var meðal annars farið yfir hvað væri framundan á þeim vettvangi á næstum mánuðum og samstarf Ferðamálstofu og markaðsstofanna í þessum efnum. Ferðamálastofa vill m.a. vinna að því að koma blaðamannaheimsóknum í fast form með þátttöku markaðsstofa og aðila í svæðisbundinni markaðssetningu, þannig að unnt sé að nýta krafta stofnunarinnar í að kveikja áhuga og draga blaðamenn til landsins, á meðan heimamenn leiða í ríkari mæli skipulagningu heimsókna, m.a. með því að og fá ferðaþjónustuaðila til liðs við ferðir með framlagi þjónustu og vöru. Einnig var markaðsstofunum kynnt sú aðferðafræði sem Ferðamálastofa beitir til að tryggja gæði blaðamanna og eftirfylgni vegna birtinga. Meðal annarra atriða sem farið var yfir á fundinum voru vefmál, ?workshop? sem framundan eru, fjármögnun markaðsstofanna og fleira.
Að sögn Ólafar Ýrr Atladóttur ferðamálastjóra stendur vilji Ferðamálastofu til þess að efla samstarf við markaðsstofur landshlutanna. Stefnt er að því að fundum sem þessu verði haldið áfram og að aðilar hittist nokkrum sinnum á ári til skrafs og ráðagerða.