Skráning á World Travel Market 2005
Líkt og undanfarin ár tekur Ferðamálaráð þátt í World Travel Market ferðasýningunni í London. Íslenskum ferðaþjónustuaðilum býðst að fá aðstöðu í bás ráðsins gegn föstu gjaldi og nú er komið hér inn á vefinn skráningarblað fyrir sýninguna.
World Travel Market er ein stærsta ferðasýning í heimi og haldin árlega. Að þessu sinni fer hún fram dagana 14.-17. nóvember og er í ExCel sýningarhöllinni í London líkt og undanfarin ár. Sýningin er opin 2 daga fyrir ferðaþjónustuaðila ( trade) og 2 daga fyrir almenning. Ferðamálaráð sér um að útbúa básana og skapa mönnum aðstöðu til að hitta viðskiptavini sína en síðan er undir hverjum og einum komið að nýta tækifærið sem best.
Skráningu lýkur 13. júní.
Hér fyrir neðan er tengill á eyðublað til skráningar í íslenska sýningarbásinn á World Travel Market 2005 en vakin er athygli á því að skráningu lýkur 13. júní. Einnig er tengill á heimasíðu sýningarinnar og mynd af íslenska básnum 2004.
- Skráning á WTM 2005 (PDF-skjal)
- Heimasíða sýningarinnar
- Mynd af íslenska sýningarbásnum á WTM 2004 (PDF-skjal)
Nánari upplýsingar um sýningar í Bretlandi veitir Sigrún Hlín Sigurðardóttir, markaðsfulltrúi sigrunh@icetourist.is Sími: 535 5500